Um Jurtadís
Konan að baki Jurtadís húðsnyrtivörum er Sabina Helvida. Sabina er fædd og uppalin í Bosníu og Hersegóvínu en flutti til Íslands árið 2005, þá einstæð móðir með tvær dætur, fjögra og átta ára gamlar.
Sabina hefur haft áhuga á jurtum og einstökum eiginleikum þeirra frá bernsku. Foreldrar Sabinu lögðu hart að sér við að byggja hús og heimili fyrir fjölskylduna og þá var Sabina svo lánsöm að fá að vera hjá ömmu sinni á þeim dögum þegar annir foreldranna voru of miklar. Allskyns jurtir uxu allt um kring í því umhverfi sem Sabina ólst upp í og snemma fór foreldrar hennar og amma hennar að segja henni frá mætti einstakra jurta og kenna henni að nota þær. Fyrsta jurtin sem Sabina lærði að þekkja var kamillu jurt, en hún var mikið notuð á æskuheimili Sabinu, t.a.m. í te, til þess að þvo andlit, setja yfir bólgin augu og síðast en ekki síst til þess að búa til afar græðandi jurtaolíu. Allar götur síðan hefur kamillu jurtin verið töfra jurt í augum Sabinu.
Amma Sabinu var einstök kona og þegar Sabina var lítil stúlka hélt hún að amma hennar væri galdrakona sem gæti notað jurtir úr náttúrunni til að leysa öll vandamál líkt og hún gerði þegar Sabina fékk skeinu á hné eftir fall, þá tók amma upp stein, stappaði með honum vallhumalslaufblöð og setti beint á sárið. Þá hætti strax að blæða og sárið tók að gróa.
Hvít lilja er uppáhaldsblómi Sabinu og er hvíta liljan einkennismerki Jurtadís Sabina húðsnyrtivörur. Liljan hefur yndislegan ilm og mjög mikla virkni og liljunni fylgja einnig dýrmætar minningar æskunnar þegar Sabina og móðir hennar tíndu saman blóm og jurtir og bjuggu síðan til úr þeim olíur. Móðir Sabinu átti ávallt til olíu úr liljum sem gripið var til þegar þurfti að bregðast við húðvandamálum líkt og bruna, sárum eða þurrkublettum. Hvíta liljan er því táknræn í huga og hjarta Sabinu þar sem hennar hvítu ávölu blöð og höfugur angan vísar til móður hennar og heimalandsins Bosníu og Hersegóvínu því liljan hvíta prýðir skjaldamerki landsins.
Þá hefur Sabina mikið dálæti á morgunfrú sem hefur græðandi, róandi og bólgueyðandi eiginleika. Morgunfrú má finna í mörgum vörum Sabinu.
Árið 2011 greindist eldri dóttir Sabinu með krabbamein og ákvað hún í kjölfarið að búa til snyrtivörur fyrir hana sem væru algerlega náttúrlegar og lausar við tilbúin efni. Á sama tíma var Sabina að glíma við alls konar ofnæmi vegna kemiskra efna sem hún notaði í starfi sínu sem hársnyrtir. Allar götur síðan hefur Sabina þróað fjöldann allan af snyrtivörum fyrir þau sem vilja algerlega náttúrulegar, hreinar og góðar vörur. Árið 2023 opnaði Sabina vinnustofu og verslun á Fáskrúðsfirði þar sem hún framleiðir allar sínar vörur sjálf. Og í þeim tilgangi að bjóða fleirum að njóta vöruúrvalsins hefur þessi vefsíða verið opnuð. Hér er hægt að panta hluta af vörunum sem framleiddar eru hjá Jurtadís Sabina húðsnyrtivörur.
Jurtatínsla og notkun þeirra
Allar jurtirnar sem Sabina notar í sínum vörum eru handtíndar á þeim tíma sem jurtirnar hafa mestu virknina, langt frá mengun og mannabyggð. Vörurnar eru síðan unnar úr þessum jurtum, bæði íslenskum og bosnískum. Sabina velur sérstaklega jurtir sem eru þekktar fyrir lækningamátt þeirra. Sérstaða varanna hjá Jurtadís Sabina húðsnyrtivörum felast því að miklu leyti í samruna og sögu lækningajurta í þessum tveimur löndum sem Sabina kallar „heima“.
Græðandi áhrif jurtanna eru sannarlega gjafir náttúrunnar og mikilvægt að huga vel að því sem sett er á húðina, ekki síður en því sem neytt er. Húðin er eitt stærsta líffæri líkamans og því mikilvægt að bjóða henni aðeins upp á það besta. Sabina velur aðeins lífræn og náttúruleg hráefni sem eru samþykkt af ECO (Ecological Products Certification) og COSMOS (Organic and Natural Cosmetics).
Innihald
Í vörunum sem Sabina framleiðir eru eingöngu náttúruleg hráefni og lífræn innihaldsefni, t.d. Shea smjör, burðarolíur, kakósmjör o.fl. Þá eru einungis notaðar lífrænt vottaðar ilmkjarnaolíur og villtar jurtir frá Íslandi og Bosníu sem Sabina týnir með eigin höndum.
Umbúðir
Umbúðir á sápum eru úr pappír, olíur og smyrsl eru í glerflöskum og glerkrukkum sem hægt er að endurnýta. Flöskurnar og krukkurnar eru úr Amber gleri sem verndar innihaldið gegn skaðlegum áhrifum ljóss.



About Jurtadís
The woman behind Jurtadís skin care products is Sabina Helvida. Sabina was born and raised in Bosnia and Herzegovina, but moved to Iceland in 2005, then a single mother with two daughters, four and eight years old.
Sabina has been interested in herbs and their unique features since childhood. Sabina's parents worked hard to build a home for the family, and then Sabina was lucky enough to stay with her grandmother during the days when the parents' schedules were busy. The environment where Sabina grew up, was very rich of all kinds of herbs and early on her parents and her grandmother began to tell her about the power of certain herbs and teach her how to use them. The first herb that Sabina learned to identify was chamomile herb, which was widely used in Sabina's childhood home, e.g. in tea, to wash the face, put over swollen eyes and most importantly, to make an extremely healing herbal oil. Ever since, the chamomile herb has been a magic herb in Sabina's heart.
Sabina's grandmother was a unique woman and when Sabina was a little girl, she thought that her grandmother had a magical power and that she could use herbs from the nature to solve all problems like she did when Sabina sprained her knee after a fall, then her grandmother picked up a stone, stomped with it yarrow leaves and put directly on the wound. Then the bleeding immediately stopped, and the wound began to heal.
The white lily is Sabina's favourite flower, and the white lily is the signature brand of Jurtadís Sabina skin care products. The lily has a wonderful aroma and very high potency, and the lily also carries with it precious childhood memories when Sabina and her mother gathered flowers and herbs in order to make oils. Sabina's mother always had oils from lilies, which was used when skin problems such as burns, wounds or dry spots needed to be treated. The white lily is therefore symbolic in Sabina's mind and heart, as its white rounded leaves and heady stem refer to her mother and her homeland Bosnia and Herzegovina, as the white lily adorns the country's coat of arms.
Sabina is also very fond of morning glory/calendula, which has healing, soothing and anti-inflammatory features. Morning glory/Calendula can be found in many of Sabina's products.
In 2011, Sabina's older daughter was diagnosed with cancer, and she subsequently decided to create cosmetics for her that were completely natural and free of artificial substances. At the same time, Sabina was struggling with all kinds of allergies due to the chemicals she used in her work as a hairdresser. Ever since, Sabina has developed a whole range of cosmetics for those who want completely natural, pure and good products. In 2023, Sabina opened a studio and shop in Fáskrúðsfjörður, where she produces all her products herself. Now this website has been launched to open the possibility for people to enjoy the product, here you can order some of the products produced by Jurtadís Sabina skin care products.
Herb picking
All the herbs that Sabina uses in her products are hand-picked at the time of the year when the herbs are most active, far from pollution and urban areas. The products are then made from these herbs, equally picked in Iceland and Bosnia. Sabina specifically selects herbs known for their healing powers. The uniqueness of the products at Jurtadís Sabina skin care products lies primarily in the fusion and history of medicinal plants in these two countries that Sabina calls "home".
The healing effects of the herbs are truly gifts of nature and it is important to pay close attention to what is put on the skin, no less than what is consumed. The skin is one of the largest organs of the body, so it is important to offer it only the best. Sabina only chooses organic and natural ingredients that are approved by ECO (Ecological Products Certification) and COSMOS (Organic and Natural Cosmetics).
Ingredients
The products produced by Sabina contain only natural and organic ingredients, e.g. Shea butter, carrier oils, cocoa butter, etc. Only organically certified essential oils and wild herbs from Iceland and Bosnia are used, which Sabina harvests with her own hands.
Packaging
The soap packaging is made from paper, oils and ointments are in glass bottles and glass jars that can be recycled. The bottles and jars are made of Amber glass, which protects the contents from the harmful effects of light.