Privacy policy

Jurtadís ehf. (kt. 430626-1400), Búðavegi 49, 750 Fáskrúðsfirði, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á jurtadis.is.

Hvaða upplýsingum söfnum við?

Þegar þú verslar hjá okkur skráum við nafn, heimilisfang, netfang og símanúmer, ásamt upplýsingum um pöntunina. Greiðslukortaupplýsingar fara beint til greiðslumiðlunar (Shopify Payments) og eru aldrei geymdar hjá okkur.

Til hvers notum við þær?

  • Til að afgreiða og senda pöntunina þína og hafa samband vegna hennar.
  • Til að uppfylla lagaskyldur, t.d. bókhaldslög.
  • Til að senda þér póstlista – aðeins ef þú skráir þig sjálf/ur. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með hlekk neðst í hverjum pósti.

Hverjir fá upplýsingarnar?

Við deilum upplýsingum aðeins með þeim sem þarf til að afgreiða pöntunina: Shopify (vefverslunarkerfi og greiðslumiðlun) og Póstinum (sending). Við seljum aldrei persónuupplýsingar.

Vafrakökur

Vefurinn notar nauðsynlegar vafrakökur til að karfan og greiðsluferlið virki, auk ópersónugreinanlegra tölfræðikaka frá Shopify.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að, leiðrétta eða láta eyða upplýsingum um þig, að því marki sem lög leyfa. Sendu beiðni á jurtadis@gmail.com.

Breytingar

Stefnan getur verið uppfærð og gildir nýjasta útgáfa á jurtadis.is hverju sinni. Síðast uppfært í október 2026.