FEGURÐ FÁSKRÚÐSFJARÐAR
FEGURÐ FÁSKRÚÐSFJARÐAR
Fegurð Fáskrúðsfjarðar varð til úr löngun minni til að skapa gjafapakka sem endurspeglar fegurð náttúrunnar og sérkenni Fáskrúðsfjarðar – staðarins sem ég hef kallað heim í mörg ár.
Gjöf sem heimafólk getur gefið með stolti og gestir tekið með sér sem fallega minningu frá Fáskrúðsfirði.
Jurtirnar í vörunum – blóðberg, vallhumall og fjallagrös – tíni ég sjálf í náttúrunni í Fáskrúðsfirði. Hreindýra- og nautatalgin kemur frá Austurlandi og vörurnar eru handgerðar í litlum upplögum hjá Jurtadís í Fáskrúðsfirði.
Þannig sameinast í pakkanum náttúra Fáskrúðsfjarðar, staðbundin hráefni og handverk.
Náttúruleg og nærandi húðumhirða
Jurtirnar eru vandlega valdar fyrir græðandi, nærandi og róandi eiginleika sína. Samsetningin hentar vel húð sem verður fyrir íslensku veðurfari – kulda, vindi og þurru lofti – og er jafnframt mild fyrir þurra og viðkvæma húð.
Hreindýra- og nautatalgin er náttúrulega rík af fitusýrum og hjálpar til við að næra, mýkja og vernda húðina. Með notkun hennar nýtum við jafnframt verðmætt staðbundið hráefni sem annars gæti farið til spillis.
Ilmurinn
Fura og sedrusviður gefa vörunum mildan, ferskan og viðarkenndan ilm sem sækir innblástur í náttúruna í kringum Fáskrúðsfjörð. Ilmurinn er léttur og hentar bæði konum og körlum.
Notkun
Líkamssápa – mild sápa fyrir daglegan þvott á líkamanum.
Líkamssmyrsl – berið á húðina eftir þörfum.
Ingredients (INCI) – Body Soap
Rangifer Tarandus Tallow (Reindeer Tallow), Bos Taurus Tallow (Beef Tallow), Olea Europaea Fruit Oil (Olive Oil), Cocos Nucifera Oil (Coconut Oil), Ricinus Communis Seed Oil (Castor Oil), Cetraria Islandica Extract (Icelandic Moss), Thymus Praecox Extract (Arctic Thyme), Achillea Millefolium Extract (Yarrow), Pinus Sylvestris Leaf Oil (Pine Essential Oil), Juniperus Virginiana Oil (Virginia Cedarwood Essential Oil), Aqua (Water), Sodium Hydroxide.
Ingredients (INCI) – Body Balm
Rangifer Tarandus Tallow (Reindeer Tallow), Bos Taurus Tallow (Beef Tallow), Helianthus Annuus Seed Oil (Sunflower Oil), Cetraria Islandica Extract (Icelandic Moss), Thymus Praecox Extract (Arctic Thyme), Achillea Millefolium Extract (Yarrow), Cera Alba (Beeswax), Pinus Sylvestris Leaf Oil (Pine Essential Oil), Juniperus Virginiana Oil (Virginia Cedarwood Essential Oil).
From náttúru Fáskrúðsfjarðar – handgert í Fáskrúðsfirði.
Hönnun og framleiðsla: Jurtadís Sabina
Mynd: Jónína Óskarsdóttir, Fáskrúðsfirði
