Íslensk Þara - og Hreindýratólgsápa
Íslensk Þara - og Hreindýratólgsápa
Íslensk þara- og hreindýratólgarsápa er handgerð sápa sem sameinar íslenskan þara og hreindýratólg í nærandi og ríkulegri samsetningu.
Sápan hreinsar húðina vel á sama tíma og ríkuleg samsetning hennar hjálpar til við að viðhalda mjúkri og vel hirtri húð.
Íslenskur þari er vandlega valið hráefni í sápuna og er náttúrulega ríkur af steinefnum og öðrum næringarefnum. Þari hefur lengi verið nýttur í húð- og hárumhirðu og hentar því einstaklega vel í sápu sem ætluð er bæði fyrir húð og hár.
Sápan myndar ríka og mjúka froðu og náttúrulegar ilmkjarnaolíur úr sítrónugrasi og appelsínu gefa henni ferskan og léttan sítrusilm.
Hentar vel til daglegrar notkunar á líkama og einnig sem föst hársápa.
Notkun
Freyðið sápuna milli handanna með vatni og berið froðuna á húðina. Sem hársápu má freyða hana í höndunum eða strjúka varlega yfir blautt hárið og nudda froðunni í hár og hársvörð. Skolið vel og látið sápuna þorna milli notkunar.I
Innihald / INCI
Reindeer Tallow, Olea Europaea (Olive) Fruit Oil, Cocos Nucifera (Coconut) Oil, Ricinus Communis (Castor) Seed Oil, Sodium Hydroxide, Aqua, Ascophyllum Nodosum Extract (Icelandic kelp), Cymbopogon Citratus (Lemongrass) Oil, Citrus Aurantium Dulcis (Orange) Peel Oil
