Lavender smyrsl
Lavender smyrsl
Lavender smyrsl er milt og nærandi jurtasmyrsl fyrir daglega umhirðu þurrrar og viðkvæmrar húðar.
Vandlega valdar jurtir, náttúrulegar olíur og smjör vinna saman að því að næra, mýkja og róa húðina og hjálpa til við að viðhalda góðu rakajafnvægi hennar.
Lavender, morgunfrú og kamilla gefa smyrslinu mildan og róandi karakter, en lavender ilmkjarnaolía veitir notalegan og náttúrulegan ilm.
Smyrslið hentar vel á þurra húð og svæði sem þarfnast aukinnar umhirðu, sérstaklega eftir sturtu eða bað og þegar húðin verður fyrir kulda, vindi eða þurru lofti.
Notkun
Berið lítið magn á húðina og nuddið varlega inn. Má nota á allan líkamann, þar á meðal andlit og varir, eftir þörfum. Hentar vel á þurra og viðkvæma húð og má nota oftar en einu sinni yfir daginn.
Innihald / INCI
Helianthus Annuus Seed Oil (Sunflower Oil), Lavandula Angustifolia Flower Extract (Lavender), Calendula Officinalis Flower Extract (Calendula), Chamomilla Recutita Flower Extract (Chamomile), Cera Alba (Beeswax), Butyrospermum Parkii Butter (Shea Butter), Theobroma Cacao Seed Butter (Cocoa Butter), Cocos Nucifera Oil & Aloe Barbadensis Leaf Extract (Aloe Vera Butter), Tocopherol (Vitamin E), Lavandula Angustifolia Oil (Lavender Essential Oil).
