Áfram í vöruupplýsingar
1 af 1

Barnaolía

Barnaolía

Venjulegt verð 2,000 kr
Venjulegt verð 2,900 kr Tilboðsverð 2,000 kr
Tilboð Uppselt
Verð með VSK. Sendingarkostnaður reiknast við greiðslu.

🎁 Það leynist gjöf í pakkanum – óvænt handgerð gjöf fylgir pöntunum yfir 10.000 kr.

Barnaolía er mild og nærandi olía, þróuð með viðkvæma húð ungbarna og barna í huga.

Olían er unnin úr apríkósukjarnaolíu sem hefur verið látin draga í sig eiginleika morgunfrúar og kamillu – jurta sem eru vandlega valdar fyrir milda og róandi húðumhirðu.

Einföld og mild samsetning nærir og mýkir húðina og hentar vel til daglegrar umhirðu, eftir bað eða fyrir notalegt og rólegt nudd.

Barnaolían er án ilmkjarnaolía og viðbætts ilms, svo náttúruleg mildi hráefnanna fær að njóta sín.

Notkun

Berið lítið magn á húðina og nuddið varlega inn. Hentar vel eftir bað, við daglega húðumhirðu eða í milt barnanudd. Má nota eftir þörfum.

Innihaldsefni (INCI)

Prunus Armeniaca Kernel Oil, Calendula Officinalis Flower Extract, Chamomilla Recutita Flower Extract.

Sending og skil

Sent með Póstinum um allt land: Póstbox 990 kr. · Pósthús 1.190 kr. Frítt að sækja í verslunina á Búðavegi 49, Fáskrúðsfirði. Við sendum líka til útlanda – sendingarkostnaður birtist í greiðsluferlinu. 14 daga skilaréttur á óopnuðum vörum.

Handgert á Fáskrúðsfirði

Allar vörur Jurtadís eru handgerðar í litlum lotum úr náttúrulegum hráefnum, án tilbúinna ilm- og litarefna og rotvarnarefna. Jurtirnar eru handtíndar í íslenskri og bosnískri náttúru.

Skoða allar upplýsingar