Vanillu Líkamsolía
Vanillu Líkamsolía
Vanillu líkamsolía er létt og silkimjúk olía fyrir daglega umhirðu húðarinnar, unnin með ekta vanillubaunum sem fá að draga í olíunni.
Vandlega valdar náttúrulegar olíur næra og mýkja húðina án þess að skilja eftir þunga eða óþægilega feita tilfinningu. Olían dreifist auðveldlega, smýgur vel inn í húðina og skilur hana eftir mjúka og vel hirta.
Vanillan gefur olíunni mildan og hlýjan náttúrulegan karakter. Engin fragrance oil eða tilbúin ilmblanda er notuð – ilmurinn kemur frá vanillubaununum sjálfum.
Olían hentar vel til daglegrar líkamsumhirðu, sérstaklega eftir sturtu eða sund, og er einnig notaleg í nudd.
Notkun
Berið hæfilegt magn á húðina og nuddið varlega inn. Gott er að bera olíuna á eftir sturtu eða bað, meðan húðin er enn örlítið rök. Má nota eftir þörfum.
Innihald
Helianthus Annuus (Sunflower) Seed Oil, Vitis Vinifera (Grape) Seed Oil, Caprylic/Capric Triglyceride (Fractionated Coconut Oil), Vanilla Planifolia Fruit Extract (Vanilla Beans), Tocopherol (Vitamin E)
