Þæfð sápa

Þæfð sápa

Venjulegt verð 2,800 ISK
Venjulegt verð Tilboðsverð 2,800 ISK
Tilboð Uppseld

Þæfð sápa sameinar milda, handgerða sápu og íslenska ull í einni náttúrulegri og einstakri vöru.

Sápan er þæfð inn í íslenska ull sem veitir húðinni létt skrúbb við þvott og hjálpar til við að fjarlægja dauðar húðfrumur. Við notkun freyðir sápan í gegnum ullina og ullin dregst smám saman saman utan um sápuna eftir því sem hún minnkar.

Sápan er án viðbætts ilms og hentar vel þeim sem kjósa ilmlausa húðumhirðu.

Viltu bæta við eigin ilm?

Ef þú vilt ilm geturðu sett örfáa dropa af ilmkjarnaolíu sem þú þekkir og notar í ullina heima og þannig notið uppáhalds ilmsins við notkun.

Notkun

Bleytið sápuna vel, nuddið þar til hún freyðir og notið ullina beint á húðina með léttum hringlaga hreyfingum. Skolið vel og látið sápuna þorna milli notkunar.

Innihald / INCI

Olea Europaea Fruit Oil (Olive Oil), Cocos Nucifera Oil (Coconut Oil), Butyrospermum Parkii Butter (Shea Butter), Aqua (Water), Sodium Hydroxide, Ricinus Communis Seed Oil (Castor Oil).

 

Skoða allar upplýsingar