




Handgert á Fáskrúðsfirði
Jurtavörur úr handtíndum jurtum — fyrir húð sem þarf alvöru umhirðu
Sápur, olíur, smyrsl og te sem Sabina býr til í höndunum úr íslenskum og bosnískum jurtum — engin tilbúin ilm- eða litarefni, engin rotvarnarefni.
Búðavegur 49
Lítil verslun við fjörðinn
Allt er búið til í höndunum í litlu vinnustofunni á Fáskrúðsfirði – í litlum lotum, af alúð.
Handtínt í hlíðunum
Blóðberg, vallhumall, fjallagrös – og hreindýratólg
Sabina tínir jurtirnar sjálf í hlíðunum í kringum fjörðinn yfir sumarið og þurrkar. Hreindýratólg úr Austfjörðunum er líka uppistaðan í mörgum smyrslunum.
Sent um allt land
Frá Fáskrúðsfirði heim til þín
Póstbox 990 kr. · Pósthús 1.190 kr. · eða sótt í verslunina. Óvænt handgerð gjöf fylgir pöntunum yfir 10.000 kr.
-
Handgert í litlum lotum
Hver vara er búin til í höndunum á Fáskrúðsfirði.
-
Hráefni skv. ECOCERT / COSMOS
Vandlega valin náttúruleg hráefni, engin tilbúin ilm- eða litarefni.
-
Endurvinnanlegar umbúðir
Umhverfisvænar umbúðir sem fara aftur í hringrásina.
-
Sent um allt land
Pantanir fara með Póstinum frá Fáskrúðsfirði — eða sóttar í verslunina.
Vöruflokkar
View all-
Gjafir og pakkar
Tilbúnir gjafapakkar og gjafabréf með því besta frá Jurtadís.
Vinsælast hjá Jurtadís
Vörurnar sem fólk kemur aftur og aftur fyrir.
-
Muscle & Joint Balm
Regular price From 3,900 krRegular priceUnit price / perSale price From 3,900 kr -
JurtaPsorex – a family-friendly skincare line
Regular price 6,500 krRegular priceUnit price / perSale price 6,500 kr -
Volcano Soap
Regular price 2,500 krRegular priceUnit price / perSale price 2,500 kr -
Magic Solution
Regular price 5,800 krRegular priceUnit price / perSale price 5,800 kr -
Wild Thyme Reindeer Soap
Regular price 2,500 krRegular priceUnit price / perSale price 2,500 kr -
Bosnian Chamomile
Regular price 2,500 krRegular priceUnit price / perSale price 2,500 kr -
THE BEAUTY OF FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR
Regular price 6,400 krRegular priceUnit price / perSale price 6,400 kr
🎁 Smá gleði frá Jurtadís
Það leynist gjöf í pakkanum þínum!
Verslaðu fyrir 10.000 kr. eða meira og fáðu óvænta handgerða gjöf frá Jurtadís með.
Hvað skyldi leynast í pakkanum þínum? 🌿
Á meðan birgðir endast. Upphæð án sendingarkostnaðar.
Finndu vöru eftir þörf
Sagan á bak við Jurtadís
„Jurtadís varð til úr jurtum, þekkingu og móðurást.“
Ég heiti Sabina Helvida og er stofnandi og handverkskonan á bak við Jurtadís. Ég ólst upp í Bosníu og Hersegóvínu en flutti til Íslands árið 2005 með dætrum mínum — í dag eru þetta löndin tvö sem ég kalla heima.
Amma mín kenndi mér að þekkja jurtirnar og nýta þær. Þegar eldri dóttir mín veiktist árið 2011 varð mér mikilvægt að vita nákvæmlega hvað ég setti á húð hennar. Það sem byrjaði sem umhyggja móður varð að Jurtadís.
Mikilvægar áherslur
-
Handtíndar jurtir
Jurtirnar eru handtíndar af alúð í íslenskri og bosnískri náttúru.
-
Vandlega valin hráefni
Við veljum náttúruleg hráefni og leggjum áherslu á hráefni sem uppfylla viðmið ECOCERT og COSMOS.
-
Umhverfisvænar umbúðir
Við leggjum áherslu á umhverfisvænar og endurvinnanlegar umbúðir.
Sölustaðir
Viltu þreifa á vörunum?
Mesta úrvalið er í versluninni á Fáskrúðsfirði, en Jurtadís fæst líka í Reykjavík, í Vík og víðar á Austurlandi: Mamma Reykjavík · Katla Wool · Vök Baths · Hús Handanna · Snæfellsstofa · Bakkabúð.
Samstarfsaðilar
Austurbrú · SSMF – Beint frá býli · Krabbameinsfélag Austurlands · Iceland Trophy · Geitagott



